Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. desember 2022 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Blackburn vann í Norwich
Mynd: Getty Images

Norwich 0 - 2 Blackburn
0-1 Ben Gibson ('4, sjálfsmark)
0-2 Tyrhys Dolan ('86)


Norwich og Blackburn áttust við í umspilsbaráttu Championship deildarinnar í dag sem var jafnframt síðasti leikur dagsins.

Leikurinn fór illa af stað fyrir heimamenn þar sem Ben Gibson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir aukaspyrnu strax á fjórðu mínútu.

Norwich var með völdin á vellinum en átti í erfiðleikum með að skapa sér góð marktækifæri gegn þéttu liði gestanna.

Heimamenn fengu tækifæri til að jafna en færanýtingin var ekki nægilega góð. Undir lokin setti Norwich allt í sóknina sem varð til þess að Blackburn tókst að innsigla sigurinn með öðru marki, þvert gegn gangi leiksins.

Blackburn er í þriðja sæti með 39 stig eftir þennan dýrmæta sigur á meðan Norwich situr eftir með 35 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner