Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. desember 2022 23:50
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Haaland leiddist án liðsfélaganna
Mynd: Getty Images

Norska landsliðið komst ekki á HM og varð Erling Braut Haaland því eftir hjá Manchester City á meðan langflestir liðsfélagar hans héldu til Katar.


Haaland leiddist án félaganna og bjó Manchester City til skemmtilegt myndband sem sýnir frá lífi Haaland í HM-fríinu.

„Ég er að leggja mikla vinnu á mig á meðan strákarnir eru í fríi," segir Haaland í byrjun myndbandsins. „Stundum er þetta svolítið leiðinlegt.

„Ég ætla ekki að ljúga, ég sakna bullsins í strákunum, og ég viðurkenni að það er ekki eins gaman að fagna mörkunum sínum einn.

„Allavega, þá vona ég að strákunum gangi vel og ég hlakka til að hitta þá."

Haaland á aðeins einn liðsfélaga sem keppir í úrslitaleik HM en allir liðsfélagar hans nema Riyad Mahrez, Stefan Ortega, Sergio Gomez og ungu Englendingarnir fóru á HM.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner