Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. janúar 2019 22:51
Brynjar Ingi Erluson
Klopp um Coutinho: Hann passar vel inn í lið Barcelona
Philippe Coutinho í leik með Barcelona
Philippe Coutinho í leik með Barcelona
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool á Englandi, segir ekkert til í því að félagið ætli sér að fá Philippe Coutinho aftur til félagsins frá Barcelona.

Liverpool seldi Coutinho til Barcelona fyrir metfé í janúar á síðasta ári en honum hefur ekki tekist að heilla Börsunga og er hann búinn að missa sæti sitt í byrjunarliðinu.

Coutinho ýtti á það að komast til Barcelona á síðasta ári en nú virðast hann vera í erfiðri stöðu og hefur hann meðal annars verið orðaður við Liverpool og erkifjendur þeirra í Manchester United.

Klopp var spurður út í Coutinho á blaðamannafundi í dag og vildi lítið sem ekkert ræða hann.

„Ég vil ekki tala um þetta. Ég myndi ekki segja að það sé í myndinni né líklegt að þetta sé að fara að gerast," sagði Klopp.

„Phil er hjá Barcelona og passar vel inn í liðið. Það er allt í góðu með hann þar," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner