David Wagner hætti störfum hjá Huddersfield Town fyrir fjórum dögum og hefur Olaf Rebbe, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, ákveðið að fylgja honum út um dyrnar.
Rebbe gekk í raðir Huddersfield síðasta vor eftir að hafa starfað fyrir Wolfsburg þar áður. Hann og Wagner eru miklir félagar eftir samstarf sitt í enska boltanum.
Þetta eru slæmar fregnir fyrir Huddersfield sem situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar og þarf nú að ráða inn nýtt starfsfólk sem fyrst vegna þess að Rebbe og Wagner sáu um leikmannakaup félagsins.
Willy Sagnol og Jan Siewert eru taldir líklegustu arftakar Wagner en félagið þarf að flýta sér að ráða inn stjóra og bæta hópinn áður en janúarglugginn lokar.
Athugasemdir