Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. janúar 2019 17:57
Elvar Geir Magnússon
Puel segir að Chilwell og Maguire verði ekki seldir í janúar
Ben Chilwell hefur leikið vel.
Ben Chilwell hefur leikið vel.
Mynd: Getty Images
Claude Puel stjóri Leicester segir að stærstu stjörnur liðsins verði ekki seldar í þessum mánuði þrátt fyrir áhuga frá stærri félögum.

Miðvörðurinn Harry Maguire var á óskalista Manchester United síðasta sumar og þá hefur hinn 22 ára Ben Chilwell vakið mikla athygli. Chilwell hefur leikið mjög vel sem vinstri bakvörður fyrir lið og land.

Báðir þessir leikmenn skrifuðu undir nýja samninga fyrr á þessu tímabili.

„Önnur félög hafa sýnt leikmönnum okkar áhuga. Það gæti eitthvað gerst í sumar en ekki núna í vetrarglugganum. Við verðum að halda okkar bestu mönnum því við viljum gera vel á þessu tímabili," segir Puel.

„Öll lið eru í sömu stöðu og reyna að halda í sína bestu menn út tímabilið. Þess vegna er þessi gluggi svona erfiður. Ég þarf að taka ákvarðanir fyrir hópinn og liðið og skil það vel að stundum verða leikmenn eitthvað pirraðir."

Leicester heimsækir Úlfana í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner