Martin Keown, fyrrum varnarmaður Arsenal, hrósaði Luke Shaw í hástert fyrir frammistöðu sína í leik Manchester United og Liverpool í gær.
Shaw átti góðan leik í vinstri bakverði Manchester United.
„Þetta var besta frammistaða Luke Shaw í treyju Manchester United sem ég hef séð," sagði Keown í pistli sínum á Daily Mail.
Shaw átti góðan leik í vinstri bakverði Manchester United.
„Þetta var besta frammistaða Luke Shaw í treyju Manchester United sem ég hef séð," sagði Keown í pistli sínum á Daily Mail.
„Hann var bestur í fjögurra manna vörn sem varðist ótrúlega vel með Scott McTominay og Fred fyrir framan."
„Það var eitt augnablik í síðari hálfleik þar sem Mohamed Salah reyndi ekki að fara framhjá Shaw heldur sneri við og sendi til baka. Salah hefur verið matröð fyrir marga varnarmenn en hann vildi ekki reyna gegn Shaw í þetta skipti."
Athugasemdir