Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. janúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Busquets hafnaði stóru tilboði frá Al-Nassr
Mynd: Getty Images
Spænski fjölmiðillinn Catalunya Radio greinir frá því að Sergio Busquets leikmaður Barcelona hafi hafnað stóru tilboði frá Al-Nassr í Sádí-Arabíu.

Cristiano Ronaldo gekk til liðs við félagið í janúar og er liðið greinilega með stór markmið.

Félagið er talið hafa boðið Busquets 20 milljónir evra.

Samningur hans við Barcelona rennur út eftir tímabilið en hann segist ekki vera búinn að ákveða framhaldið þó hann vilji fá það á hreint fyrir lok mánaðarins.

Xavi stjóri liðsins og Joan Laporta forseti félagsins segjast vilja halda honum út tímabilið en hann gæti þurft að taka á sig launalækkun.


Athugasemdir
banner
banner
banner