Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. janúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elliott: Milner ætti kannski að hvetja mig meira
Harvey Elliott fagnar marki sínu, James Milner fylgir á eftir
Harvey Elliott fagnar marki sínu, James Milner fylgir á eftir
Mynd: EPA

Harvey Elliott skoraði sigurmark Liverpool gegn Wolves í enska bikarnum í gær með glæsilegu skoti fyrir utan vítateiginn.


Hann sagði frá því eftir leikinn að James Milner, sem bar fyrirliðabandið í leiknum, hafi hvatt hann til að taka skotið.

„Milner var að öskra 'skjóttu' svo ég varð að gera það. Hann ætti kannski að hvetja mig meira til að skjóta því það virkaði klárlega," sagði Elliott.

„Ég hef verið dæmdur fyrir mörk og stoðsendingar svo ég hef verið að vinna í því og það skilaði sér í dag. Persónulega finnst mér ég ekki hafa verið upp á mitt besta eftir HM en þetta var gott fyrir sjálfstraustið."

Næsti leikur Liverpool er gegn Chelsea á Anfield á laugardaginn kemur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner