Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. janúar 2023 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Framlengir við Njarðvík en spilar í Sandgerði í sumar
Lengjudeildin
Mynd: Njarðvík
Njarðvík tilkynnti í morgun að markmaðurinn Daði Fannar Reinhardsson væri búinn að famlengja samning sinn við félagið.

Daði, sem fæddur er 2003, er nú samningsbundinn Njarðvík út tímabilið 2025.

„Í framhaldi af því heldur Daði á lán til Reynis Sandgerðis og leikur með Reynismönnum í 3. deildinni næsta sumar," segir í tilkynningu Njarðvík.

Hann gekk upp úr 2. flokki á síðasta ári. Hann á að baki fimm KSÍ leiki fyrir Njarðvík, fjóra deildarleiki sumarið 2021 og einn bikarleik.

Komnir
Alex Bergmann Arnarsson frá Víkingi (var á láni hjá ÍR)
Gísli Martin Sigurðsson frá Aftureldingu
Joao Ananias frá Albaníu
Magnús Magnússon frá Reyni S.
Óskar Atli Magnússon frá FH
Tómas Bjarki Jónsson frá Augnabliki
Walid Birrou frá Þrótti Vogum

Farnir
Einar Orri Einarsson í Reyni
Magnús Þórir Matthíasson hættur
Sölvi Björnsson í Gróttu (var á láni)
Athugasemdir
banner
banner
banner