mið 18. janúar 2023 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Suarez skoraði þrennu í fyrsta leiknum
Mynd: Getty Images

Luis Suarez lék sinn fyrsta leik með Gremio í nótt eftir komuna frá uppeldisfélaginu sínu, Nacional.


Gremio tók þá á móti Sao Luiz í Ofurbikarkeppni þar sem Gremio fór með 4-1 sigur af hólmi.

Öll mörkin komu í fyrri hálfleik en það tók Suarez aðeins fimm mínútur að skora fyrsta markið sitt.

Hann skoraði síðan annað mark sitt og þriðja mark Gremio á 31. mínútu og sjö mínútum síðar var hann kominn með þrennu.

Fabio, fyrrum leikmaður Manchester United var einnig í byrjunarliðinu í sínum fyrsta leik í nótt.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner