Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. janúar 2023 20:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Xavi: Þið drepið mig ef ég vinn ekki titil
Mynd: EPA

Xavi veit að það fylgir því miil pressa að stýra Barcelona.


Barcelona vann spænska ofurbikarinn eftir góðan sigur á Real Madrid en Xavi veit að það er ekki nóg fyrir stuðningsmenn liðsins.

„Það sem ég vil er að vinna, spila vel og að liðið njóti þess að spila fótbolta. Ég sagði það þegar ég kom hingað fyrst. Það sást á dögunum en ég er ekki frjáls, það er pressa á mér fyrir bikarkeppnina, deildina og Evrópudeildina. Þið drepið mig ef ég verð ekki búinn að vinna titla þegar tímabilinu lýkur," sagði Xavi.

Barcelona mætir Ceuta í 16 liða úrslitum Konungsbikarsins á morgun.


Athugasemdir
banner
banner
banner