Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. janúar 2023 22:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Zaha: Wan-Bissaka er sá eini sem getur framkvæmt svona tæklingu
Mynd: EPA

Michael Olise bjargaði stigi fyrir Crystal Palace gegn Manchester United þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma í kvöld.


Það hefur lítið gengið upp að undanförnu hjá Palace en Wilfried Zaha leikmaður liðsins var stoltur af frammistöðunni í kvöld.

„Við vitum að við erum með hæfileikana. Stjórinn hefur verið að tönglast á því að berjast og það skilar sér að lokum eins og sýndi sig í dag," sagði Zaha.

Hann var nálægt því að gera út um leikinn á síðustu sekúndunum þegar hann var kominn einn á móti David de Gea en Aaron Wan-Bissaka vann frábærlega til baka og náð boltanum af Zaha.

„Þegar ég leit til baka hugsaði ég bara: Guð minn góður þetta er Aaron [Wan-Bissaka].' Hann er sá eini sem getur framkvæmt svona tæklingu," sagði Zaha.


Athugasemdir
banner
banner
banner