Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. mars 2019 08:00
Arnar Helgi Magnússon
Giggs ánægður að Ramsey sé á leiðinni til Juventus
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey mun ganga til liðs við Ítalíumeistara Juventus eftir tímabilið. Samningur hans við Arsenal rennur út í vor og þarf Juventus því ekki að greiða fyrir leikmanninn.

Ryan Giggs, landsliðsþjálfari Wales, er ánægður með þessi félagsskipti og telur þetta jákvætt skref fyrir leikmanninn.

„Þetta verður frábær reynsla fyrir Ramsey. Hann er á leiðinni í frábært umhverfi hjá stærsta félagi á Ítalíu. Aðstæðurnar hjá félaginu eru til fyrirmyndar og þar er allt til alls."

Aaron Ramsey hefur verið að spila vel fyrir Arsenal upp á síðkastið.

„Hann er greinilega ennþá með hugann við Arsenal enda er hann að spila vel þar. Það sýnir hversu frábær hann er, hann lætur þetta ekki trufla sig."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner