Ísland spilar úrslitaleik gegn Arúba í fyrramálið en liðin mætast í Special Olympics World Games.
Leikurinn fer fram í fyrramálið klukkan 06:30 á íslenskum tíma en leikið er í Abú Dabí.
Ísland sýndi yfirburði í riðlakeppninni og lagði Eistland og Írland að velli. Strákarnir okkar lögðu Arúba einnig að velli 3-2 og mætast liðin nú aftur í úrslitin.
Ísland lagði Eistland að velli 5-4 í síðasta leik riðlakeppninnar og skoraði Gabríel Óskar Halldórsson fernu í þeim leik.
Ljóst er að strákarnir mæta Arúba í úrslitaleiknum.#fyririsland
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 18, 2019
Athugasemdir