Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. mars 2019 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sun: Chelsea neitar fyrsta tilboði Real í Hazard
Kostar 130 milljónir punda
Mynd: Getty Images
Real Madrid, hefur samkvæmt heimildum the Sun, boðið í Eden Hazard, leikmann Chelsea. Chelsea er sagt hafa neitað tilboðinu.

Real Madrid er sagt hafa boðið 93 milljónir punda í Hazard en Chelsea er sagt vilja að lágmarki 130 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Leikmaðurinn er sagður vilja spila fyrir spænsku risana en hann er samningsbundinn Chelsea út næstu leiktíð.

Chelsea hefur nú þegar keypt Christian Pulisic frá Dortmund sem mögulegan arftaka Hazard. Félagið er á leiðinni í félagskiptabann og má því illa við að missa leikmenn frá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner