Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 18. mars 2019 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Valverde: Heppin að vera uppi á sama tíma og Messi
Mynd: Getty Images
Lionel Messi átti stórleik er Barcelona sigraði Real Betis í spænska boltanum í gærkvöldi. Argentínski snillingurinn skoraði þrennu og fékk mikið lof fyrir frammistöðuna.

Ernesto Valverde, þjálfari Börsunga, átti erfitt með að finna orð til að lýsa Messi eftir sigurinn.

„Í kvöld sáum við hvernig fólk bregst við snilli Messi. Viðbrögð áhorfenda voru mögnuð þrátt fyrir að hann hafi látið þá kveljast með að skora þrjú mörk. Við erum öll mjög heppin að lifa á sama tíma og Messi," sagði Valverde.

Ivan Rakitic lagði síðasta mark leiksins upp fyrir Messi og hrósaði hann stuðningsmönnum Betis. Rakitic þekkir þá ansi vel eftir að hafa verið fyrirliði hjá nágrönnum þeirra í Sevilla.

„Allir vita að ég er mikill Sevilla maður en ég ber mikla virðingu fyrir stuðningsmönnum Betis. Þeir sýndu Leo mikla virðingu í kvöld og ég vil óska þeim til hamingju því þetta var mjög vel gert hjá þeim."

Barcelona er með tíu stiga forystu á toppi spænsku deildarinnar þegar tíu umferðir eru eftir af tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner