Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 18. mars 2020 22:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Níu dýrustu stjórar sögunnar
Mynd: Getty Images
Portúgalski miðillinn A Bola birti fyrr í mánuðinum grein þar sem farið var yfir hæstu verðmiða sem greiddir hafa verið fyrir stjóra á milli liða.

Sex af ellefu hæstu verðmiðunum eru fyrir portúgalska stjóra og komu þeir Brendan Rodgers og Jose Mourinho fyrir í tvígang.

Hæsti verðmiðinn sem greiddur hefur verið fyrir stjóra eru þær fimmtán milljónir evra sem Cheslea greiddi Porto fyrir Andre Villas-Boas á sínum tíma.

Brendan Rodgers frá Celtic til Leicester er í öðru sæti en í þriðja sæti er óvænt Rúben Amorim sem Sporting sótti frá Braga.

Jose Mourinho er í fjórða og sjöunda sæti. Mark Hughes, Carlo Ancelotti, Manuel Pellegrini, Sergio Conceicao og Leonardo Jardim eru einnig á listanum. Mynd úr grein A Bola má sjá hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner