Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fim 18. mars 2021 23:34
Victor Pálsson
Lengjubikarinn: Árborg lagði Berserki
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Árborg er með fullt hús stiga í C-deild Lengjubikars karla eftir leik við Berserki á Víkingsvelli í kvöld.

Magnús Ingi Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Árborg í leik kvöldsins sem lauk með 2-1 sigri gestaliðsins.

Þessi lið leika í riðli 2 í C-deildinni og hefur Árborg unnið bæði Vængi Júpíters og nú Berserki.

Í hinum leik kvöldsins mættust KB og Ísbjörninn en þar hafði það fyrrnefnda betur sannfærandi 5-1.

Eins og er vantar markaskorara úr þeim leik en það er hægt að senda þá á [email protected].

Berserkir 1 - 2 Árborg
0-1 Magnús Ingi Einarsson('54)
0-2 Magnús Ingi Einarsson('77)
1-2 Gunnar Jökull Johns('90)

KB 1 - 5 Ísbjörninn
Athugasemdir
banner
banner
banner