Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. mars 2021 21:41
Victor Pálsson
Rándýrt fyrir Tottenham að reka Mourinho
Mynd: Getty Images
Það myndi kosta Tottenham himinháa fjárhæð að reka Jose Mourinho úr starfi að sögn David Ornstein hjá the Athletic.

Ornstein skrifaði grein í kvöld um samningamál Mourinho sem gæti verið valtur í sessi eftir tap gegn Dinamo Zagreb.

Tottenham lá 3-0 gegn Zagreb í Evrópudeildinni í kvöld og er úr leik í 16-liða úrslitum samanlagt, 3-2.

Mourinho skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Tottenham í nóvember 2019 og tók þá við af Mauricio Pochettino.

Ornstein segir að ef Tottneham ákveði að reka Mourinho fyrir sumarið 2023 þá myndi það kosta liðið afar háa upphæð.

Einnig er tekið fram að Mourinho sé einn launahæsti stjóri heims en hann hefur á sínum ferli unnið allt mögulegt sem þjálfari.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner