Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 18. apríl 2019 11:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Anna Rakel lagði upp í fyrsta deildarleik
Mynd: Pétur Ólafsson
Anna Rakel Pétursdóttir og stöllur hennar í Linköpings FC hófu í gær keppni í Damallsvenskan, efstu deild í Svíþjóð, þegar Linköpings tók á móti Vaxsjö á heimavelli.

Leiknum lauk með öruggum sigri heimakvenna 5-0.

Rakel spilaði allan leikinn og átti stoðsendingu í fyrsta markinu strax á fjórðu mínútu. Góð byrjun hjá Rakel og liðinu hennar.

Næsti leikur liðsins er í Stokkhólmi næsta mánudag við Djurgarden.

Hjá Djurgarden leika þær Guðbjörg Gunnarsdóttir, Guðrún Arnardóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir.
Athugasemdir
banner
banner
banner