Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 18. apríl 2019 19:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Camarasa ætlar ekki að vera áfram hjá Cardiff
Mynd: Cardiff City
Fjölmiðlar í Sevilla greina frá því í dag að Victor Camarasa ætli sér ekki að vera áfram í Cardiff og hafi neitað boði um það að vera áfram hjá liðinu eftir leiktíðina.

Hann á einnig að hafa neitað sama boði sem bauðst honum í janúar.

Camarasa er á láni hjá Cardiff frá Real Betis og ætlar sér ekki að snúa til baka til Betis eftir lánssamninginn.

Camarasa stefnir að því að halda áfram að leika í úrvalsdeildinni. Lið eins og Tottenham, Leicester og West Ham eru sögð hafa áhuga á leikmanninum.

Camarasa hefur skorað fimm mörk og lagt önnur fjögur upp fyrir Cardiff á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner