Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. apríl 2019 15:00
Arnar Daði Arnarsson
Draumaliðsdeildin - Viðar Ari velur sitt lið
Draumalið Viðars Ara.
Draumalið Viðars Ara.
Mynd: Draumaliðsdeildin
Viðar Ari í leik með FH í fyrra.
Viðar Ari í leik með FH í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Draumaliðsdeild Eyjabita opnaði í síðustu viku og rúmlega 1400 lið eru nú þegar skráð til leiks.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Viðar Ari Jónsson og leikmaður Sandefjord í Noregi er búinn að velja sitt draumalið í leiknum.

Viðar Ari er með Gunnleif Gunnleifsson markvörð Breiðabliks í markinu af einni ástæðu. „Hann er kóngurinn."

Hann stillir upp þriggja manna vörn með þá Hauk Heiðar, Kennie Chopart og Þórarin Inga. „Þrír bakverðir að upplagi standa vaktina, það er alltaf góð uppskrift."

„Ég er síðan með Birni, Arnþór Ara, Ólaf Inga, Hilmar Árna á miðjunni. Glerhörð miðja sem skilar mörkum og assistum. "Binni bolti" verður flottur hjá völsurum í sumar og sama má segja um "triple A" í HK. Ólafur Ingi og Hilmar Árni eru meistarar það er bara þannig. Þetta er alvöru miðja."

Framlínan er ekkert slor með þá Emil Atla, Viktor Jóns, Steven Lennon. „Sama má segja um alla þessa þrjá þetta eru allt alvöru menn. Mörk ofaná mörk ofaná mörk."

Sjá einnig:
Draumalið Arons Elís Þrándarsonar
Draumalið Óttars Magnúsar Karlssonar
Draumalið Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur
Draumalið Rúnars Alex Rúnarssonar
Draumalið Elíasar Más Ómarssonar
Draumalið Öglu Maríu Albertsdóttur
Draumalið Olivers Sigurjónssonar
Draumalið Arnórs Ingva Traustasonar
Athugasemdir
banner
banner