Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. apríl 2019 13:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liðin sem komust í undanúrslit fá 10,4 milljónir punda
Mynd: Getty Images
Staðfestar tölur frá UEFA segja að félögin fjögur, Ajax, Tottenham, Barcelona og Liverpool fá hvert um sig 10,4 milljónir punda fyrir það að komast í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.

Upphæðin er rúmur 1,6 milljarður íslenskra króna. Upphæðina fá félögin fyrir það að komast þetta langt í keppninni.

Upphæðin jókst um 3,9 milljónir punda frá því í fyrra en þá fengu liðin sem komust þetta langt 6,5 milljónir punda í sinn hlut.

Hækkunin er því um sex hundruð miljónir króna milli ára.
Athugasemdir
banner
banner