Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. apríl 2019 11:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mane stefnir að því að verða goðsögn - Hugurinn áfram á Anfield
Mynd: Getty Images
Sadio Mane, leikmaður Liverpool, stefnir að því að verða goðsögn. Framtíð hans sé hjá Liverpool þar sem verkið er þegar hafið.

Senegalski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður í burtu og Real Madrid hefur verið orðað við kappann. Mane virðist vera allur á því að vera áfram hjá Liverpool.

„Ég ætla að verða goðsögn, ekki eingöngu hjá Liverpool. Ég ætla mér að setja mitt mark á úrvalsdeildina í heild sinni og sögu hennar. Það er markmið mitt," sagði Mane í viðtali við LFC Magazine.

„Ég ætla mér að gera allt sem í mínu valdi stendur til að ná því."

„Að ná að spila hundrað leiki fyrir Liverpool er frábært og hefur mikla þýðingu fyrir mig."

„Ég er mjög ánægður að spila fyrir félagið og alla daga nýt ég mín. Ég geri allt sem ég get til þess að félagið sigri"
Athugasemdir
banner