Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. apríl 2019 23:05
Ívan Guðjón Baldursson
Ólíklegt að Ramsey nái undanúrslitaleikjunum
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey gæti misst af síðustu vikum tímabilsins eftir að hafa farið haltrandi af velli í 0-1 sigri Arsenal gegn Napoli fyrr í kvöld. Fari allt á versta veg hefur hann leikið sinn síðasta leik fyrir félagið, en hann skiptir yfir til Juventus í sumar á frjálsri sölu.

Ramsey var að spila vel þegar hann meiddist í fyrri hálfleik. Stuðningsmenn Napoli fögnuðu meiðslunum og buðu hann þannig velkominn í ítalska boltann á nokkuð óíþróttamannslegan máta.

„Ég veit ekki hversu slæm meiðslin eru. Þetta eru vöðvameiðsli sem þýðir yfirleitt nokkrar vikur frá keppni," sagði Emery.

„Hann mun missa af nokkrum leikjum, það er ólíklegt að hann verði klár fyrir undanúrslitaleikina gegn Valencia."

Emery var að vonum kátur með sigur sinna manna en segir að öll einbeiting fari núna í deildarkeppnina. Á páskadag er heimaleikur gegn Crystal Palace og svo eru erfiðir útileikir á dagskrá þar á eftir gegn Wolves og Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner