Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. apríl 2019 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
„Real Madrid mun eyða 500 milljónum í sumar"
Mynd: Getty Images
Fabio Capello, fyrrum þjálfari Juventus, Real Madrid og enska landsliðsins meðal annars, segist hafa það eftir öruggum heimildum að Real Madrid mun eyða 500 milljónum evra á leikmannamarkaðinum í sumar.

Hávær orðrómur hefur verið uppi um að Zinedine Zidane vilji selja stóran hluta leikmannahópsins og kyndir Capello undir þeim orðrómi.

„Traustir heimildarmenn mínir segja að Real Madrid mun eyða 500 milljónum evra næsta sumar," sagði Capello í ítölsku sjónvarpi í gærkvöldi en hann starfar fyrir Sky þar í landi.

Leikmenn á borð við Eden Hazard, Paul Pogba og Christian Eriksen hafa verið orðaðir við Real sem virðist aðallega ætla að veiða leikmenn úr enska boltanum.
Athugasemdir
banner
banner