Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 18. apríl 2021 06:00
Victor Pálsson
Abraham heill en var ekki valinn í hóp
Mynd: Getty Images
Það gæti verið að Tammy Abraham sé á förum frá Chelsea þegar sumarglugginn opnar eftir leiktíðina.

Abraham er ekki fyrsti maður á blað hjá Thomas Tuchel sem tók við af Frank Lampard fyrr á tímabilinu.

Það vakti ansi mikla athygli að Abraham var ekki í hóp í gær þegar Chelsea vann Manchester City 1-0 í enska bikarnum.

Sky Sports og fleiri greina frá því að Abraham sé heill heilsu en að hann hafi einfaldlega ekki verið valinn.

Útlit er fyrir að Tuchel sé sáttur við lífið án Abraham en Chelsea er komið í úrslit bikarsins.

Abraham er markahæsti leikmaður Chelsea á tímabilinu með 12 mörk en hefur ekki spilað í 56 daga.
Athugasemdir
banner
banner