Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. apríl 2021 06:00
Victor Pálsson
Mingueza býst við að ræða nýjan samning
Mynd: Getty Images
Oscar Mingueza, leikmaður Barcelona, er viss um að hann fái að ræða við félagið um nýjan samning.

Mingueza er 21 árs gamall bakvörður en hann hefur spilað vel á leiktíðinni og í raun komið nokkuð óvænt inn í spænska liðið.

Mingueza er að spial sitt fyrsta tímabil fyrir aðallið Barcelona en hann hafði leikið í þrjú ár með varaliðinu, Barcelona B.

Samningur leikmannsins rennur út í sumar en Mingueza er viss um að hann geti framlengt við uppeldisfélagið.

„Öllum dreymir um að spila fyrir Barcelona. Samningamálin verða rædd og það er í höndum umboðsmanna," sagði Mingueza.

„Ég einbeiti mér að því að spila. Ég vonast til að vera hluti af aðalliðinu. Þú vilt spila fyrir bestu liðin og ég er afar ánægður hér."
Athugasemdir
banner
banner
banner