Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. maí 2019 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Huddersfield losar sig við fimm leikmenn
Jonas Lossl er á förum frá Huddersfield.
Jonas Lossl er á förum frá Huddersfield.
Mynd: Getty Images
Huddersfield féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Liðið var fallið snemma á leiktíðinni, undir lok mars.

Félagið hefur losað sig við fimm leikmenn núna strax eftir leiktíðina. Þar á meðal er markvörðurinn Jonas Lossl.

Ásamt Lossl losar félagið sig við Erik Durm, Danny Williams, Jack Payne og framherjann Laurent Depoitre.

Huddersfield ætlar sér að semja við Isaac Mbenza sem kom til félagsins á lánssamningi frá Montpellier.
Athugasemdir
banner