Raheem Sterling átti góðan leik eins og allt Manchester City liðið í 6-0 sigri gegn Watford í úrslitaleik enska bikarsins.
Sterling hélt hann hefði skorað þrennu í leiknum en enska knattspyrnusambandið skráði annað mark leiksins á Gabriel Jesus.
Skot Gabriel Jesus var við marklínuna þegar Sterling potaði knettinum í netið. Eftir að hafa skoðað atvikið á myndbandi var markið skráð á Jesus.
Pep Guardiola fór til Sterling eftir lokaflautið og hafði eitthvað að segja við hann. Samtalið vakti athygli og var Sterling ekki lengi að deila innihaldinu með fylgjendum sínum á Twitter.
„Hann sagði bara að ég hefði ekki átt að reyna að stela fyrsta markinu," skrifaði Sterling á Twitter.
No let-up 💪
— Manchester City (@ManCity) May 18, 2019
🔵 #mancity 🏆🏆🏆🏆 pic.twitter.com/VydKRODWRE
He just said I shouldnt have tried to steal that first goal ... 😅😅 https://t.co/jImYpPV6oj
— Raheem Sterling (@sterling7) May 18, 2019
Athugasemdir