Heimild: MBL
Andrea Mist Pálsdóttir, sem hefur leikið með Þór/KA allan sinn feril á Íslandi, er á leið í FH samkvæmt heimildum mbl.is. Andrea gekk í raðir ítalska félagsins Orobica í vetur og samningur hennar þar rennur út á næstu dögum og er henni þá frjálst að semja við annað félag.
Heimildir mbl.is herma að tilkynnt verði um félagaskiptin á miðvikudag. FH er nýlíði í efstu deild en liðið hafnaði í öðru sæti Inkasso-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Hin 21 árs gamla Andrea hefur spilað 3 A-landsliðsleiki fyrir Ísland og hún hefur alls skorað fjórtán mörk í 97 leikjum í efstu deild.
Komnar í FH:
Birta Georgsdóttir frá Stjörnunni
Hrafnhildur Hauksdóttir frá Selfossi
Sigríður Lára Garðarsdóttir frá ÍBV
Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir frá HK/Víkingi
Athugasemdir