Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. maí 2020 13:03
Elvar Geir Magnússon
Dybala að gera samning við Juve til 2025
Paulo Dybala.
Paulo Dybala.
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Paulo Dybala er nálægt því að framlengja samning sinn við Juventus til 2025.

Ítalskir fjölmiðlar segja að nýr samningur verði undirritaður um leið og umboðsmaður Dybala getur ferðast til Ítalíu.

La Gazzetta dello Sport segir að aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum í samningnum.

Þessi 26 ára leikmaður hefur skorað sjö mörk og átt níu stoðsendingar í 24 leikjum í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili. Þá er hann með fimm mörk og þrjár stoðsendingar í bikarnum og Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner