Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 18. maí 2021 23:19
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Kría vann KFR - KH skoraði þrettán á Valsvelli
KH vann þrettán marka sigur á Gullfálkanum
KH vann þrettán marka sigur á Gullfálkanum
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Kría vann góðan 4-2 sigur á KFR í A-riðli 4. deildar karla í kvöld en á sama tíma gerðu GG og Ísbjörninn 1-1 jafntefli. Stærsti sigur kvöldsins var hins vegar 13-0 sigur KH á Gullfálkanum í B-riðli deildarinnar.

Þetta voru fyrstu leikir liðanna í A-riðlinum. Jóhannes Hilmarsson skoraði tvívegis fyrir Kríu en Pétur Már Harðarson og Viðar Þór Sigurðsson komust einnig á blað. Kristinn Ásgeir Þorbergsson gerði bæði mörk KFR.

GG og Ísbjörninn skildu þá jöfn. Birkir Snær Sigurðsson kom GG yfir á 15. mínútu áður en Ágúst Karel Magnússon jafnaði metin þegar um það bil tíu mínútur voru eftir.

KH gjörsigraði Gullfálkann, 13-0. Haukur Ásberg Hilmarsson og Sigfús Kjalar Árnason skoruðu báðir þrennu. Alexander Lúðvígsson skoraði þá tvö mörk og þá komust þeir Jón Örn Ingólfsson, Patrik Írisarson Santos, Magnús Óliver Axelsson, Daði Kárason og Gísli Rafnsson einnig á blað.

Úrslit og markaskorarar:

Kría 4 - 2 KFR
1-0 Jóhannes Hilmarsson ('8 )
2-0 Pétur Már Harðarson ('45 )
2-1 Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('55 )
2-2 Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('59 )
3-2 Viðar Þór Sigurðsson ('74 )
4-2 Jóhannes Hilmarsson ('90 )

GG 1 - 1 Ísbjörninn
1-0 Birkir Snær Sigurðsson ('15 )
1-1 Ágúst Karel Magnússon ('79 )

KH 13 - 0 Gullfálkinn
1-0 Alexander Lúðvígsson ('4 )
2-0 Jón Örn Ingólfsson ('21 )
3-0 Alexander Lúðvígsson ('22 )
4-0 Sigfús Kjalar Árnason ('23 )
5-0 Haukur Ásberg Hilmarsson ('35 )
6-0 Sigfús Kjalar Árnason ('42 )
7-0 Haukur Ásberg Hilmarsson ('43 )
8-0 Haukur Ásberg Hilmarsson ('54 )
9-0 Patrik Írisarson Santos ('58 )
10-0 Magnús Óliver Axelsson ('71 )
11-0 Sigfús Kjalar Árnason ('72 )
12-0 Daði Kárason ('84 )
13-0 Gísli Rafnsson ('86 )
Athugasemdir
banner
banner
banner