Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   þri 18. maí 2021 14:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bruno aftur Sir Matt Busby leikmaður ársins - Yfirburðakosning
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes var í dag valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum Manchester United.

Bruno, Luke Shaw, Edinson Cavani og Harry Maguire voru þeir þrír leikmenn sem mest var talað um að gætu skákað Bruno.

Þetta er annað tímabilið í röð sem Bruno vinnur verðlaunin en hann kom til félagsins í janúar í fyrra og var valinn bestur þrátt fyrir að leika einungis hálft tímabil.

Bruno hefur skorað átján sinnum í 36 úrvalsdeildarleikjum og skorað níu mörk í Evrópukeppnunum. Hann hefur lagt upp ellefu mörk í úrvalsdeildinni og fimm í Evrópu. Hann skoraði þá eitt mark í bikarnum.

Fernandes fékk 63% atkvæða í kjörinu en Shaw var í öðru sæti með 21% atkvæða. Bruno vann því með nokkrum yfirburðum.

Athugasemdir
banner
banner