Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. maí 2021 17:05
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Brighton og Man City: Sex breytingar hjá Guardiola
Ruben Dias kemur aftur inn í vörnina
Ruben Dias kemur aftur inn í vörnina
Mynd: Getty Images
Brighton og Manchester City mætast í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á AMEX-leikvanginum í kvöld en leikurinn hefst klukkan 18:00.

Pep Guardiola gerir nokkrar breytingar á liði sínu en Ruben Dias og Ederson koma meðal annars aftur inn í liðið eftir að hafa fengið góða hvíld gegn Newcastle United á dögunum.

Guardiola gerir sex breytingar í heildina á meðan Graham Potter gerir eina breytingu á liði Brighton frá síðasta leik.

Brighton: Sánchez, White, Webster, Burn, Groß(c), Alzate, Bissouma, Moder, Jahanbakhsh, Welbeck, Mac Allister

Man City: Ederson, Cancelo, Dias, Stones, Zinchenko, Rodrigo, Gundogan, Bernardo, Mahrez, Torres, Foden
Athugasemdir
banner
banner
banner