Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. maí 2021 20:42
Brynjar Ingi Erluson
Diallo og Pogba með fána Palestínu á Old Trafford
Paul Pogba og Amad Diallo með fánann
Paul Pogba og Amad Diallo með fánann
Mynd: EPA
Amad Diallo og Paul Pogba, leikmenn Manchester United, flögguðu fána Palestínu eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Fulham á Old Trafford í kvöld en þetta var síðasti heimaleikur United.

Í þessari viku hafa rúmlega 200 palestínskir borgarar látið lífið í loftárásum ísraelska hersins en þar af er helmingur konur og börn.

Leikmenn hafa síðustu daga sýnt Palestínu stuðning á samfélagsmiðlum og um helgina ákváðu leikmenn Leicester að flagga fánanum eftir sigurinn í enska bikarnum.

Diallo og Pogba sýna Palestínumönnum stuðning en þeir voru með fána Palestínu á Old Trafford eftir leikinn gegn Fulham í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner