Enski landsliðsmaðurinn Mason Mount var valinn maður leiksins er Chelsea vann Leicester 2-1 í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Antonio Rüdiger skoraði fyrir Chelsea í upphafi síðari hálfleiks áður en Jorginho gerði annað markið úr víti. Kelechi Iheanacho kom svo inn af bekknum og minnkaði muninn fyrir bikarmeistarana.
Mount var skapandi í leiknum og stafaði mikil ógn af honum en Sky Sports valdi hann mann leiksins. Þrír leikmenn Leicester fá 5.
Chelsea: Mendy (6), James (7), Azpilicueta (7), Silva (7), Rudiger (8), Chilwell (7), Jorginho (7), Kante (6), Mount (8), Pulisic (6), Werner (8).
Varamenn: Kovacic (6), Giroud (6), Zouma (6).
Leicester: Schmeichel (6), Castagne (7), Fofana (6), Soyuncu (7), Thomas (6), Ndidi (6), Tielemans (6), Maddison (5), Albrighton (6), Perez (5), Vardy (5).
Varamenn: Iheanacho (7), Pereira (6).
Maður leiksins: Mason Mount
Athugasemdir