Roy Keane er sá fjórði sem tekinn hefur verið inn í frægðarhöll ensku úrvalsdeildarinnar.
Þessi fyrrum fyrirliði Manchester United fær þar félagsskap frá Eric Cantona, Alan Shearer og Thierry Henry
Þessi fyrrum fyrirliði Manchester United fær þar félagsskap frá Eric Cantona, Alan Shearer og Thierry Henry
Keane var írskur landsliðsmaður en hann vann sjö úrvalsdeildartitla, FA-bikarinn fjórum sinnum og Meistaradeildina árið 1999 með Manchester United.
„Ég er mjög heppinn að hafa verið tekinn inn í þessa frægðarhöll en ástæðan fyrir því eru leikmennirnir sem ég hef spilað með," segir Keane.
Fleiri verða teknir inn í frægðarhöllina á morgun og á fimmtudaginn.
Athugasemdir