Strákarnir okkar í íslenska karla landsliðinu eru virkir á samfélagsmiðlum á meðan á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi fer fram.
Þar geta aðdáendur fylgst með þeim í þeirra frístundum og þar fer ýmislegt fram.
Þar geta aðdáendur fylgst með þeim í þeirra frístundum og þar fer ýmislegt fram.
Í gærdag birti landsliðsfyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson myndskeið á Instagram þar sem hann Rúrik Gíslason rakar af honum hárið.
Það er greinilega mikil nánd á milli leikmanna í landsliðinu og þó svo að Aron Einar hafi nú ekki verið með mikið hár fyrir, er þó mikilvægt að snyrta á sér hárið af og til svo menn líti nú vel út, á stærsta sviðinu í íþróttaheiminum.
Það fylgir ekki sögunni hvort að Aron Einar hafi síðan fengið að snyrta hárið hans Rúriks í kjölfarið.
Athugasemdir