Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 18. júní 2019 11:05
Fótbolti.net
Líkleg byrjunarlið Stjörnunnar og Breiðabliks
Leikurinn í kvöld klukkan 19:15
Alex Þór Hauksson er í líklegu byrjunarliði Stjörnunnar.
Alex Þór Hauksson er í líklegu byrjunarliði Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Þórðarson snýr úr leikbanni.
Kolbeinn Þórðarson snýr úr leikbanni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og Breiðablik eigast við í Pepsi Max-deildinni í kvöld í Garðabæ. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið fyrir leikinn.

Miðjumaðurinn Eyjólfur Héðinsson og sóknarmaðurinn Guðjón Baldvinsson fóru meiddir af velli í fyrri hálfleik í 2-2 jafnteflinu gegn FH síðasta föstudag.

Líklegt er að leikurinn í kvöld komi of snemma fyrir þá og spáum við því að Alex Þór Hauksson og Guðmundur Steinn Hafsteinsson, sem komu af bekknum í Kaplakrika, komi inn í byrjunarliðið.



Beiðablik átti afar dapran dag síðasta föstudag þegar liðið tapaði 4-3 gegn Fylki. Kolbeinn Þórðarson tók út leikbann í þeim leik en kemur inn í liðið núna. Fótbolti.net spáir sama byrjunarliði hjá Blikum og vann FH fyrir landsleikjahlé.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner