Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 18. júní 2019 18:00
Arnar Daði Arnarsson
Mótsmiðasala á heimaleiki kvennalandsliðsins hefst á morgun
Mótsmiðasala á alla heimaleiki hefst á morgun.
Mótsmiðasala á alla heimaleiki hefst á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Mótsmiðasala á alla heimaleiki A landsliðs kvenna í undankeppni EM 2021 hefst á morgun klukkan 12:00 á Tix.is. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Um er að ræða fjóra leiki á Laugardalsvelli gegn Ungverjalandi og Slóvakíu um mánaðamótin ágúst-september á þessu ári og gegn Lettlandi og Svíþjóð í júní 2020.

„A landslið kvenna hefur komist í síðustu þrjár lokakeppnir EM. Ísinn var brotinn í Finnlandi 2009, næsta skref var tekið í Svíþjóð 2013 og þrennunni náð í Hollandi 2017. Nú er komið að næsta áfanga á þessari vegferð kvennalandsliðsins, og þú getur komið með. Ferðalagið til Englands 2021 hefst í haust," segir á heimasíðu KSÍ.

Upplýsingar um mótsmiðahafa
- Mótsmiðahafar fá kort með nafninu sínu og upplýsingum um sæti. -- Kortið verður strikamerkt og gildir sem aðgöngumiði á alla leikina. - Ársmiðarnir verða afhentir (eða sendir í pósti) í gjafaöskju með óvæntum glaðningi. Tilvalin sumargjöf fyrir allt knattspyrnuáhugafólk!

Fá aðgang að opinni æfingu
Auk þess að tryggja ársmiðahafa sæti á öllum heimaleikjum Íslands í undankeppni EM 2021 fá korthafar aðgang að opinni æfingu liðsins.

Errea veitir ársmiðahöfum 15% afslátt af landsliðsvörum. Þá geta heppnir ársmiðkaupendur átt von á að vinna baksviðspassa Vodafone á heimaleikjum.

Hægt er að kaupa fjóra ársmiða í hverri pöntun og í boði eru sæti í Vesturstúku. Mótsmiðaverð miðast við að einn leikur af 4 heimaleikjum sé „ókeypis“.

Fullt miðaverð (4 heimaleikir):
Fullorðnir kr. 2.500 = kr. 10.000 á 4 heimaleiki
Börn kr. 500 = kr. 2.000 á 4 heimaleiki

Mótsmiðaverð (4 heimaleikir):
Fullorðnir kr. 7.500
Börn kr. 1.500

Athugið að takmarkaður fjöldi sæta er í boði í mótsmiðasölu.

Í kaupferlinu er gert ráð fyrir að valin séu sæti sem mótsmiðahafi fær á öllum leikjum undankeppninnar. Þurfa kaupendur að skrá nöfn allra mótsmiðahafa og nöfnin munu koma fram á korti hvers og eins.

Eingöngu er um að ræða mótsmiðasölu að þessu sinni. Sala á staka leiki verður auglýst síðar. Miðasalan fer eins og fyrr segir fram á Tix.is og hefst í hádeginu á morgun, 19. júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner