Rúmlega 50 þúsund manns hafa sótt leiki Pepsi Max deildar karla þegar átta umferðir eru búnar. Þetta kemur fram á vef Knattspyrnusambandsins.
„Aðsókn að leikjum Pepsi Max deildar karla hefur verið með ágætum það sem af er sumri og fyrstu leikir eftir árlegt landsleikjahlé lofa góðu fyrir framhaldið," segir á KSÍ.is.
Alls hafa 50.703 sótt leikina 48 sem fram hafa farið og er meðalaðsókn að leikjum deildarinnar að loknum átta umferðum 1.056 á leik.

Flestir áhorfendur eru að meðaltali á heimaleikjum Breiðabliks, eða 1.580. Litlu munar á FH og Fylki þar sem rúmlega 1400 áhorfendur hafa mætt að meðaltali á heimaleiki þeirra í sumar.
Fæstir mæta á heimaleiki ÍBV í Vestmannaeyjum, eða 331 að meðaltali.
Hér að neðan má sjá meðalaðsókn hjá félögunum í Pepsi-Max deild karla.
Félag Meðalaðsókn
Breiðablik 1.580
FH 1.423
Fylkir 1.416
ÍA 1.361
Valur 1.227
KR 1.164
Stjarnan 1.127
Víkingur 980
KA 900
HK 770
Grindavík 635
ÍBV 331
Næstu leikir í Pepsi Max-deildinni:
þriðjudagur 18. júní
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Samsung völlurinn)
miðvikudagur 19. júní
19:15 KR-Valur (Meistaravellir)
laugardagur 22. júní
14:00 Breiðablik-ÍBV (Kópavogsvöllur)
17:00 ÍA-HK (Norðurálsvöllurinn)
sunnudagur 23. júní
16:00 Valur-Grindavík (Origo völlurinn)
16:00 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)
17:00 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
19:15 FH-KR (Kaplakrikavöllur)
Athugasemdir