Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 18. júní 2022 18:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Sjáðu myndir - Fram með sigur í vígsluleiknum
Fram fagnar marki.
Fram fagnar marki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 3 - 2 KH
0-1 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('2 )
1-1 Jessica Grace Kass Ray ('18 )
2-1 Ana Catarina Da Costa Bral ('59 )
3-1 Jessica Grace Kass Ray ('72 )
3-2 Kristín Anna Smári ('75 )

Það var stór stund fyrir fótboltafélagið Fram í dag því í fyrsta sinn fór fram leikur á nýjum og glæsilegum heimavelli liðsins í Úlfarsárdal.

Félagið er búið að bíða lengi eftir þessari stund, að spila fótboltaleik á þessu nýja svæði sínu.

Nýr heimavöllur félagsins er stórglæsilegur og tekur 1600 manns í sæti. Vígsluleikurinn var í dag þegar Fram tók á móti KH í 2. deild kvenna.

Fram byrjar vel á þessum velli því þeirra lið vann 3-2 sigur í stórskemmtilegum leik. Jessica Grace Kass Ray var öflug í liði Fram og skoraði tvennu í þessum fyrsta heimaleik liðsins á nýjum velli.

Karlalið Fram leikur sinn fyrsta heimaleik á vellinum er þeir fá ÍBV í heimsókn á mánudaginn.

Haflliði Breiðfjörð var á vellinum og tók myndirnar sem fylgja þessari frétt.
Athugasemdir
banner
banner