Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. júní 2022 10:21
Brynjar Ingi Erluson
Haaland gefur sterka vísbendingu um næsta áfangastað Botheim
Erik Botheim á leið til Rangers?
Erik Botheim á leið til Rangers?
Mynd: Getty Images
Norski framherjinn Erling Braut Haaland virðist gefa sterka vísbendingu um næsta áfangastað Erik Botheim á Instagram en það er útlit fyrir að hann sé á leið til Skotlands.

Botheim og Haaland eru liðsfélagar í norska landsliðinu en Botheim er á mála hjá Krasnodar á meðan Haaland samdi við Manchester City á dögunum.

Þeir félagarnir eru í fríi sem stendur og njóta lífsins en Botheim birti mynd af sér með Haaland á Instagram.

Haaland skrifar undir myndina I'm feeling it og vísar þar í söngva stuðningsmanna Rangers á leikjum liðsins.

Botheim kom til Krasnodar frá Bodö/Glimt í byrjun árs en hélt heim til Noregs í mars eftir innrás Rússa inn í Úkraínu. Hann rifti svo samningi sínum í maí.

Framherjinn hefur verið sterklega orðaður við Rangers í Skotlandi síðustu vikur og virðist styttast í samkomulag við félagið ef marka má orð Haaland.


Athugasemdir
banner
banner