lau 18. júní 2022 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Mbappe neitaði ekki, hann sagði þeim bara að bíða aðeins"
Mbappe er magnaður leikmaður.
Mbappe er magnaður leikmaður.
Mynd: EPA
Real Madrid goðsögnin Hugo Sanchez hefur trú á því að Kylian Mbappe muni einn daginn enda í Madrídarstórveldinu.

Mbappe ákvað í síðasta mánuði að segja 'takk, en nei takk' við Real Madrid og framlengja við PSG.

Hann mun gegna risastóru hlutverki bæði innan sem utan vallar hjá PSG, en talið er að hann þéni eitthvað í kringum 100 milljónir evra í árslaun og þá fær hann 300 milljónir evra fyrir að skrifa undir samninginn. Svona tölur hafa ekki oft sést áður.

Sanchez hefur trú á því að þessi saga um Mbappe til Real Madrid muni spretta upp aftur.

„Ég er ekki inn í höfði hans, en ég er með þann grun að hann hafi ekki neitað Real Madrid - hann hafi frekar sagt þeim að bíða aðeins,” sagði sá mexíkóski.

PSG hefur aldrei unnið Meistaradeildina og það gæti verið ofarlega í huga Mbappe að hjálpa félaginu að vinna þá keppni í fyrsta sinn. Peningarnir skemma heldur ekkert fyrir.

Mbappe er bara 23 ára og á nóg eftir af sínum ferli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner