Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 18. júní 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nketiah fær númer með ríka sögu
Eddie Nketiah.
Eddie Nketiah.
Mynd: EPA
Enski sóknarmaðurinn Eddie Nketiah er búinn að framlengja samning sinn og ætlar hann að halda áfram vegferð sinni með Arsenal.

Þessi 23 ára gamli leikmaður gerir fimm ára samning við félagið.

Nketiah skoraði fimm mörk í 21 leik í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann fékk aðeins meira traust eftir áramót og var að spila nokkuð vel rétt áður en tímabilið kláraðist.

Það er talað um það á football.london að Nketiah muni fá nýtt númer fyrir næstu leiktíð í kjölfarið á þessum nýja samningi. Þetta tiltkekna númer á sér ríka sögu hjá Arsenal.

Hann mun fá treyju númer 14 en Thierry Henry er hvað þekktastur fyrir að bera þetta númer á baki sínu hjá félaginu. Henry er einn besti leikmaður í sögu Arsenal.

Síðasti leikmaðurinn til að bera þetta númer var Pierre-Emerick Aubameyang sem yfirgaf félagið í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner