Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 18. júní 2022 10:39
Brynjar Ingi Erluson
Rakst á Dembele á rúntinum - Segist ætla að vera áfram hjá Barcelona
Ousmane Dembele segist ekki á leið til Chelsea
Ousmane Dembele segist ekki á leið til Chelsea
Mynd: EPA
Franski vængmaðurinn Ousmane Dembele er ekki á leið til Chelsea ef marka má svör hans við spurningum á götum Parísar á dögunum.

Dembele, sem er 25 ára gamall, er með mörg járn í eldinum sem stendur en samningur hans við Barcelona rennur út um mánaðarmótin.

Hann hefur ekki viljað gefa mikið upp um framtíð sína en enskir fjölmiðlar hafa haldið því fram að hann sé á leið til Chelsea.

Franskur maður var á rúntinum í París er hann rakst á Dembele og lagði fyrir hann nokkrar spurningar um framtíðina.

Dembele svaraði honum og sagðist vera ánægður hjá Barcelona og að hann væri ekki á leið til Chelsea.

„Mér líður vel hjá Barca," sagði svo Dembele áður en leiðir þeirra skildust, en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner