Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. júlí 2018 09:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Balotelli loksins mættur til æfinga hjá Nice
Balotelli kíkti á æfingu í dag.
Balotelli kíkti á æfingu í dag.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli er nú mættur aftur til æfinga hjá Nice en samningsviðræður við Marseille hafa gengið hægt undanfarið.

Balotelli hefur verið orðaður við Marseille í sumar en er nú mættur til æfinga hjá Nice og hafið undirbúningstímabilið.

Patrick Viera, nýr þjálfari Nice gagnrýndi Balotelli er leikmaðurinn mætti ekki á fyrstu æfingu sumarsins undir stjórn Viera. Svo virðist sem samningsviðræður við Marseille gangi ekki vel og því mætti framherjinn á æfingu í dag.

Balotelli hefur skorað 43 mörk í 66 leikjum fyrir Nice og hefur hægt og rólega verið að endurbyggja orðspor sitt eftir lægð undanfarin ár á Englandi og í heimalandinu.
Athugasemdir
banner