Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 18. júlí 2018 08:59
Hafliði Breiðfjörð
Cech á leið í markið hjá Chelsea
Powerade
Petr Cech gæti yfirgefið Arsenal og farið óvænt aftur til Chelsea.
Petr Cech gæti yfirgefið Arsenal og farið óvænt aftur til Chelsea.
Mynd: Getty Images
Hér kemur hann, slúðurpakkinn úr ensku miðlunum og það er af nægu að taka í dag þó það sé ákveðið markmanns- og Chelsea þema að þessu sinni.

Real Madrid er með belgíska framherjann Edin Hazard hjá Chelsea efstan á óskalista sínum sem eftirmann Cristiano Ronaldo sem fór til Juventus. (Star)

Thibaut Cortouis markvörður Chelsea mun fylgja landa sínum til Real Madrid, kaupverðið er 31 milljón punda. (Marca)

Ef Chelsea selur Courtois til Spánar ætlar félagið að kaupa Petr Cech aftur frá Arsenal og ef það gengur ekki þá Kasper Schmeichel frá Leicester. (Sky Sports)

Gary Cahill varnarmaður Chelsea gæti verið notaður sem skiptimynt upp í 44,2 milljón punda kaup félagsins á Daniele Rugani varnarmanni Juventus. (London Evening Standard)

Chelsea er enn í kapphlaupi um að kaupa Alisson markvörð Roma þrátt fyrir 62 milljón punda kauptilboð Liverpoool í Brasilíumanninn. (Football Italia)

Marki Arnautovic framherji West Ham gæti gengið til liðs við Man Utd eða Roma en Lundúnarfélagið vill hlusta á tillboð í hann. (TalkSport)

Brasilíski framherjinn Richarlison gæti fylgt Marcos Silva stjóra sínum til Everton frá Watford. (Times)

Everton er líka í viðræðum um að kaupa brasilíska kantmanninn Malcolm sem leikur með Bordeaux og gæti kostað 30 milljónir punda. (Sky Sports)

Zinedine Zidane fyrrverandi stjóri Real Madrid er á leið í raðir Juventus í starf íþróttastjóra eða eitthvað álíka. (Libertad Digital)
Athugasemdir
banner
banner
banner