Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   mið 18. júlí 2018 22:40
Sverrir Örn Einarsson
Eli Keke: Höfðum stjórn á þeim í 90 mínútur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emmanuel Eli Keke átti góðan leik í vörn Víkinga frá Ólafsvík í sigri liðsins á Víkingi R. í 8.liða úrslitum Mjólkurbikarsins í knattspyrnu sem fram fór í Víkinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 -  1 Víkingur Ó.

„Tilfinningin er frábær, þetta var ekki auðveldur leikur að spila gegn liði úr efstu deild með mikil gæði. Þetta er bara mjög gott og að fara í undanúrslit ég er bara gríðarlega hamingjusamur með það.“

Sagði Eli Keke eftir leik um það hvernig honum liði eftir sigurinn.

Varnarmenn Ólafsvíkinga héldu sóknarmönnum heimamanna í skefjum allan leikinn og náðu heimamenn aldrei að skapa hættu eða færi gegn sterkri og skipulagðri vörn Ólafsvíkinga.

„Við höfðum stjórn á þeim allar 90 mínúturnar og þeir settu ekki mikið af hættulegum boltum á okkur. Við urðum að vera skýrir með hvað við vorum að gera og ég og liðsfélagar mínir í vörninni erum í stöðugum samskiptum og bökkum hvorn annan upp.“

Keke gekk til liðs við Ólafsvíkinga fyrir tímabilið og lék fréttaritara forvitni á að vita hvernig lífið á Ólafsvík væri fyrir hann.

„Lífið er kyrlátt ekki of margir bílar eins og hér í Reykjavík. Samstaðan, Ólafsvík er lítið samfélag og fólkið, allir brosa til þín og er nánara hvort öðru sem er gott fyrir mig sem knattspyrnumann því ég fæ ró til að einbeita mér að ferlinum.“

Sagði Eli Keke en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner